Lífið

Maggi Mix selur portrait-myndir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mikill listamaður.
Mikill listamaður. vísir
Lífskúnstnerinn Maggi Mix býður fram glænýjan þjónustu á Facebook-síðu sinni og ætlar hann að taka listina fyrir að þessu sinni.

Magnús er óneitanlega hæfileikaríkur drengur og gerir allt sem hann tekur sér fyrir hendur hundrað prósent. Núna býðst hann til að teikna myndir af fólki og er hægt að kaupa þær á eitt þúsund krónur, 1500 krónur með heimssendingu.

Á Facebook-síðu sinni sýnir hann afraksturinn og má telja líklegt að þessar myndir seljist eins og heitar lummur. Um er að ræða portrait myndir af fólki eða andlitsmyndir. 

Villt þú að ég teikni þig? Kostar 1.000 kr.1.500 með heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu

Posted by Maggi Mix on 17. september 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×