Lífið

Fyrstur til að hljóta titilinn American Ninja í sjö ára sögu þáttanna

mynd/ninja warrior
Isaac Caldiero skráði sig í sögubækurnar í gær þegar hann bar sigur úr býtum í American Ninja Warrior, raunveruleikaþætti sem gengur út á það að leysa erfiðar þrautir. Sigurinn er merkilegur fyrir þæt sakir að Caldiero er sá fyrsti, eftir sjö ára göngu sjónvarpsþáttanna, sem tekst að ljúka þrautunum fjórum. Hann má því réttilega titla sig Ninju.

Keppnin var æsispennandi frá upphafi til enda og tókst keppendunum tveimur að ljúka öllum þrautum. Það munaði þó 3,6 sekúndum á þeim og hlaut Caldiero því titilinn American Ninja Warrior.

Verðlaunaféð er ekki af verri endanum, eða ein milljón dollara, jafnvirði rúmum 127 milljónum íslenskra króna.

Myndbönd af viðureign þeirra má sjá hér fyrir neðan.

Báðum tókst þeim að ljúka öllum þrautunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×