Ljósið 10 ára: Mikilvægur stuðningur eftir veikindi Viktoría Hermannsdóttir skrifar 12. september 2015 14:30 Erna stofnaði Ljósið fyrir tíu árum með báðar hendur tómar og fékk til liðs við sig mikið af góðu fólki sem hefur byggt upp starfsemina. Fréttablaðið/Anton Brink
Það er heimilisleg stemning í Ljósinu þegar blaðamann og ljósmyndara ber að garði rétt fyrir hádegi. Fjölmenni er í húsinu, fólk að spjalla með kaffibolla í hendi, aðrir í handverksvinnu og hugleiðsla í einu herberginu. „Við leggjum mikið upp úr því að það sé heimilisleg stemming hérna, fólki á ekki að líða eins og það sé að koma inn á einhverja stofnun,“ segir Erna Magnúsdóttir, stofnandi Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda og fjölskyldur þeirra, sem fagnar tíu ára afmæli sínu um þessar mundir.Mikill sköpunargleði er í Ljósinu og margir sem vinna að handverki, jafnvel margir sem uppgötva leynda hæfileika. Fréttablaðið/Anton Brink„Við byrjuðum með tvær hendur tómar en okkur hefur tekist að byggja þetta upp á þessum tíu árum með hjálp margra og nú á að fara stækka húsið en það er Oddfellow-reglan sem gefur okkur viðbygginguna,“ segir Erna. Starfsemin hófst í kjallara Neskirkju haustið 2005. Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu og stuðning, bæði frá fagaðilum og fólki í sömu sporum. Fjölmargt er í boði; námskeið, líkamsrækt, fyrirlestrar, hópastarf og handavinna svo eitthvað sé nefnt. Og margir nýta sér þjónustuna. „Það voru 70 hér í gær, í fyrra voru 1.000 manns sem komu hingað,“ segir Erna um leið og hún sýnir okkur húsið.Mikið af námskeiðum eru í boði, meðal annars jóga. Fréttablaðið/AntonÞrátt fyrir að starfsemi Ljóssins hafi fyrir löngu sannað virkni sína þá segir Erna hið opinbera aðeins styrkja starfið að litlum hluta. „Við höfum barist í mörg ár fyrir að fá samning við ríkið til að hjálpa okkur en fáum eftir 10 ár um helming af rekstrarfénu frá hinu opinbera en hinu þurfum við að safna fyrir. Það fer mikill tími í það. Við erum með okkar styrktaraðila en það fer of mikill tími í fjáröflunina,“ segir Erna og nefnir afmælistónleika Ljóssins sem haldnir verða í Háskólabíói næstkomandi miðvikudag. „Við myndum halda svona oftar en það tekur mikinn tíma að skipuleggja þetta,“ segir hún.Heimilisleg stemming.Erna vann áður hjá Landspítalanum við endurhæfingu krabbameinssjúklinga. Þegar starfsemin var skert ákvað hún að láta reyna á það að opna nýjan stað fyrir starfsemina. Það gekk eftir og hefur starfsemin stækkað ár frá ári. „Fólk fær hér andlega og líkamlega endurhæfingu. Við erum með líkamsrækt hér en líka í Hreyfingu. Einnig erum við með nudd og alls kyns heilsumeðferðir. En fyrst og fremst er þetta stuðningur. Það er áfall að greinast með krabbamein og margir verða einmana, flestir þurfa að hætta í vinnu og eru mikið einir. Hér fær fólk góðan undirbúning við að byggja sig aftur upp eftir krabbameinsmeðferðir eða koma sér aftur af stað út í lífið.“DavíðGott að ræða við fólk í sömu stöðuDavíð Kristófer Young greindist með eitlakrabbamein í fyrra. „Ég mætti hérna fyrst í janúar á þessu ári eftir að ég var búinn með meðferðina,“ segir Davíð sem er í dag laus við meinið. Hann kom í Ljósið til þess að byggja sig upp líkamlega og andlega eftir meðferðina. „Það voru allir yndislegir sem tóku á móti mér hér og mér hefur liðið vel hér síðan,“ segir Davíð. Hann segir mikilvægt að hitta aðra með sömu eða svipaða reynslu. „Líka það að maður var ekki að vinna og leiddist. Þá var gott að koma hingað, fá sér hádegismat og vera í kringum fólk sem skildi mig. Mínir nánustu eru æðislegir og styðja við bakið á manni en það er ekki það sama, þeir skilja ekki alveg hvað maður er að ganga í gegnum.“ Davíð hefur verið í hóp með fólki á aldrinum 30-40 ára sem hittist reglulega á æfingum í Hreyfingu. „Þetta er öflugur hópur og flestir með börn líka. Við reynum að hittast aðra hvora viku og gera eitthvað skemmtilegt. Þetta er hress hópur og mikil læti í okkur á æfingum, við erum öll orðin góðir vinir í dag,“ segir hann.ElínMikil gleði „Ég fékk hér ómetanlegan stuðning,“ segir Elín Stephensen sem kom fyrst í Ljósið fyrir um ári, þá nýkomin úr krabbameinsaðgerð. Hún fór á námskeið fyrir nýgreindar konur sem voru á svipuðum stað í ferlinu og hún. Hún segir það hafa skipt miklu máli að geta talað við fólk sem var á sama stað og hún og skildi líðanina. „Ég vil meina að það námskeið hafi hreinlega skipt sköpum fyrir mig. Það myndast svo mikill trúnaður. Þarna getur maður talað um allt í sambandi við krabbameinið, meðferðina og líðanina. Svo erum við náttúrulega í veikindaleyfi þannig að við værum meira og minna að hanga einar heima en í staðinn kemur maður hér, hittir fólk og spjallar. Hérna frammi er bara glaumur og gleði. Ekkert verið að tala um veikindi nema bara í léttum dúr en bak við luktar dyr opnar maður á erfiðleikana, tárin og allt það.“ Elín er kennari og er nýfarin að vinna aftur í 50 prósent starfi en kemur áfram reglulega í Ljósið. „Hér er bara gleði. Það er hlegið, faðmast, þetta er svolítið eins og koma heim.“GunnarGóð ráð „Þetta er svo rosalega flott starfsemi. Bæði hvað er vel tekið á móti fólki en líka að það eru fáir staðir í dag sem kosta lítið. Það geta því allir tekið þátt sama hvaðan þeir koma,“ segir Gunnar L. Friðriksson sem byrjaði að koma í Ljósið í fyrravetur eftir að hann greindist með ristilkrabbamein. Gunnar hefur kennt núvitund undanfarin ár og er nú farin að kenna námskeið í Ljósinu. „Mig langaði að gefa eitthvað til baka því ég hef fengið svo margt hér,“ segir hann. „Ég hafði heyrt af Ljósinu en vissi ekki nákvæmlega hvað væri í gangi hérna. Ég ákvað að prófa og fannst gott að koma hingað. Svo fór ég í lyfjameðferð og hafði góðan tíma, þá var gott að koma hingað og fá stuðning. Vera í gönguhóp, hitta fólk og fá sér kaffisopa. Fá punkta sem maður fær ekki annars staðar. Fólk sem var búið að fara í gegnum þetta áður og gat gefið manni góð ráð.“
Mest lesið Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Tíska og hönnun Dularfull tíst Dylans vekja furðu Lífið Davíð Lúther og Linda selja sælureitinn með gullfiskum Lífið Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Fer að sofa klukkan fjögur og getur sveiflast um þrjátíu kíló Lífið „Laugarnesið hafði mjög mikil áhrif á mig í uppvexti“ Lífið Heitasti partýljósmyndari Reykjavíkur stefnir langt Lífið Eldræða Sölku Sólar í ráðhúsinu Lífið Flott klæddir feðgar Tíska og hönnun Ása Steinars og Leo keyptu einbýli í Garðabæ Lífið Fleiri fréttir Davíð Lúther og Linda selja sælureitinn með gullfiskum „Laugarnesið hafði mjög mikil áhrif á mig í uppvexti“ Heitasti partýljósmyndari Reykjavíkur stefnir langt Dularfull tíst Dylans vekja furðu Eldræða Sölku Sólar í ráðhúsinu Flotinn og amma Andrea hlutu viðurkenningu Barnaheilla Myndir: Þungt yfir stjörnunum við jarðarför Payne Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Snerti taug leikstjóra Forrest Gump á Kjarvalstofu Ása Steinars og Leo keyptu einbýli í Garðabæ Elín Metta og Sigurður eignuðust stúlku Liam Payne lagður til hinstu hvílu „Finnst þér þetta litlir kjúklingavængir í höndunum á mér?“ Ótrúlegur kvöldmatur Bergs Ebba: „Þetta er gott fyrir heilann“ Hvernig hætti ég að feika það? Fer að sofa klukkan fjögur og getur sveiflast um þrjátíu kíló Sér eftir því að hafa látið stækka á sér rassinn Heiðdís Rós fann ástina í örmum bílasala í New York Erna Mist og Þorleifur keyptu útsýnishæð í Vesturbænum Aron Can fagnaði 25 ára afmælinu á hótel Geysi Jónsi í Sigur Rós skein skært í Seattle Ilmaðu eins og frambjóðendur Vildi milljón pund, bauðst hálf og afþakkaði boðið „Er þetta kannski eitthvað sem þú vilt senda okkur í tölvupósti“ Búa í einstakri þakíbúð í miðborginni en Halli keypti líka æskuheimilið sitt á móti Ungfrú Danmörk fegurst allra Lára og Jens verða mamma og pabbi Brjáluð stemning í Eldhúspartýi FM957 Annar bakaradrengur kominn í heiminn Stjörnulífið: „Það er gott að vera ekki í feluleik og flótta frá sjálfum sér“ Sjá meira