Bíó og sjónvarp

Baltasar og Lilja stórglæsileg á rauða dreglinum í Hollywood

Stefán Árni Pálsson skrifar
Baltasar og Lilja voru virkilega flott saman.
Baltasar og Lilja voru virkilega flott saman. Vísir/afp
Baltasar Kormákur og Lilja Pálmadóttir voru að sjálfsögðu mætt á frumsýningu Everest í Hollywood í gærkvöldi. Myndin var sýnd í Chinese Theatre og voru allar stjörnurnar mættar á rauða dregilinn fyrir mynd.

Lilja og Balti tóku sig einstaklega vel út á rauða teppinu en stjörnur á borð við Jake Gyllenhaal og Josh Brolin voru að sjálfsögðu mættir á frumsýninguna.

Kvikmynd Baltasars Kormáks, Everest, var opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum í síðustu viku.

Myndin segir frá leiðangri hóps göngumanna upp á topp Everest-fjallsins árið 1996 þar sem átta létu lífið. Með helstu hlutverk fara Jake Gyllenhaal, Jason Clarke, Josh Brolin og John Hawkes.

Vísir/afp
Vísir/afp
Vísir/afp
Vísir/afp
Vísir/afp
Vísir/afp
Vísir/afp
Vísir/afp

Tengdar fréttir

Everest sýnd á Stöð 2

Stöð 2 hefur gert langtímasamning við bandaríska kvikmyndaframleiðandann NBC Universal um kaup á kvikmyndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.