Lífið

Kris Jenner brotnaði niður þegar hún sá gömlu fötin hans Bruce Jenner

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kris Jenner brotnaði niður í þættinum.
Kris Jenner brotnaði niður í þættinum. vísir
Kris Jenner hefur greinilega ekki alveg jafnað sig eftir að hún og Caitlyn Jenner, áður Bruce Jenner, skildu.

Kris Jenner er móðir Kardashians- systranna og fer hún með eitt af aðalhlutverkunum í raunveruleikaþáttunum Keeping Up with the Kardashians.

Eins og frægt er orðið gengur Bruce Jenner nú undir kynleiðréttingarferli en hann var stjúpfaðir systranna. Hann segist hafa verið fastur í röngum líkama alla ævi.

Sjá einnig: Caitlyn Jenner sló heimsmet

Í nýjasta þætti Keeping Up with the Kardashians kemur Kim Kardashian í heimsókn til móður sinnar og afhendir henni gömul föt, sem Bruce Jenner gekk í.

Kris brotnaði niður og báru tilfinningarnar hana greinilega ofurliði.

Sjá einnig: Kallaðu mig Caitlyn Jenner

„Það er bara svo skrítið að hann sé farinn,“ segir Kris við Kim og faðmar hana um leið.

„Ég held að þetta sé bara svona erfitt, því ég hef aldrei gengið í gegnum svona áður. Ég á greinilega mjög langt í land, það er langt í það að ég skilji þetta.“


Tengdar fréttir

Kylie Jenner orðin 18 ára

Raunveruleikastjarnan fékk 40 milljóna króna Ferrari-sportbíl frá kærastanum sínum, Tyga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×