Lífið

Bestu strandbarir í heiminum - Myndir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúleg fegurð.
Ótrúleg fegurð. visir
Strandbarir eru gríðarlega vinsælir um heim allan en á síðu The Telegraph er farið í gegnum bestu strandbari í heiminum.

Hér að neðan má sjá nokkra vel valda bari sem eflaust margir Íslendingar hafa áhuga á að heimsækja.

Pelican Bar, Jamaica

Barinn er staddur nokkur hundruð metrum frá ströndinni, út á sjó. Upphaflega var þetta skýli fyrir þreytta sjómenn til að hvíla sig. 

Pelican BarMynd: Alamy
Baba Nest, Tæland

Ótrúlegt útsýni á þessum bar sem er við strönd á Phuket í Tælandi. Sólsetrið er með ólíkindum þegar fólk situr á pallinum og horfir yfir hafið. 

Baba Nest.Mynd/alamy
Rock Bar, Indónesía

Staðsettur ofan á kletti, fjórtán metrum fyrir ofan sjóinn. Talað um besta staðin til að fá sér í glas á Balí. Plötusnúðar þeyta skífum fram á rauða nótt og er dansað í takt við tónlistina. 

Rock BarMynd/www.MermaidPicturesandPrinting.com
Kanali Taverna, Grikkland

Hér er hægt að sitja við sjóinn og fylgjast með fiskibátum koma inn í höfnina. Hægt er að panta sér einstaka sjávarrétti. 

Kanali TavernaMynd/ www.MermaidPicturesandPrinting.com
Z-Plage, Frakkland

Einstakur bar við sjóinn á Cannes. Barinn tilheyrir Grand Hyatt Cannes Hótelinu í borginni og er um virkilega fallegan stað að ræða. Það verður að teljast líklegt að einhverjar Hollywood-stjörnur séu á staðnum þegar þú ferð á Z-Plage.

Z-PlageMynd/alamy
Barquito Mawimbi, Mexíkó  

Á eyjunni Holbox má finna þennan rólega og fallega bar við ströndina. 

Barquito Mawimbimynd/alamy
Barasti, Dubai

Virkilega smekklegur bar við höfnina í Dubai. Staðnum er skipt upp í tvennt en á öðrum staðnum er rólegra andrúmsloft en einnig er hægt að horfa á allskonar íþróttaviðburði á barnum. 

BadeschiffMynd: Alamy
Badeschiff, Þýskaland

Það er kannski ekki strönd í Berlín en þarna er fljótandi sundlaug sem nýtur gríðarlegrar vinsælda. Plötusnúðar þeyta skífum allan daginn og mætir mikið af ungu fólki á góðum sumardegi. 

Hula Hula Beach Barmynd/alamy
Hula Hula Beach Bar, Króatía

Alveg við sjóinn við höfnina í borginni Hvar er líflegur bar þar sem bæði túristar og innfæddir skemmta sér vel. Þar er hægt að sjá sólina setjast sem sýnir mikið sjónarspil. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×