Lífið

Dómarinn tók upp byssu í miðjum leik - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega sérstakt atvik.
Virkilega sérstakt atvik.
Ótrúlegt myndband frá Brasilíu hefur litið dagsins ljós en á því má sjá knattspyrnudómara taka upp byssu í miðjum fótboltaleik.

Gabriel Murta, dómari leiksins, reif upp skammbyssu eftir hörð viðbrögð leikmannanna þegar hann gaf einum þeirra rautt spjald.

Atvikið átti sér stað í leik milli Brumadinho og Amantes da Bola í áhugamannadeild.

Murta starfar sem lögreglumaður í landinu en leikmaður í Amantes da Bola bæði kýldi og sparkaði í hann. Þetta kemur fram í frétt hjá The Guardian.

Maðurinn skaut ekki úr byssunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×