Lífið

Handtaska haustsins

Chanel haust 2015
Chanel haust 2015
Töskur eru einn af mikil­vægustu fylgihlutum kvenna, nánast alltaf með í för og geta gert mikið fyrir lúkkið. Í haust eru handtöskurnar að skreppa saman og eiga nú að hanga í hendi eða nálægt öxl samkvæmt tískuspekingum. Veskið minnkar og böndin eru að styttast, ef þau eru til staðar yfirhöfuð. Þetta er jákvæð breyting að því leytinu til að það veitir meira öryggi í stórborgum gagnvart vasaþjófum. Að kona haldi á veski nær sér sýnir að hún sé í góðu jafnvægi og ekki að flýta sér of mikið í amstri dagsins. Hún er samt sem áður á ferðinni en virðist ekki þurfa jafn mikið meðferðis. Margar kannast við að bæta stöðugt ofan í töskuna og vera með stútfulla tösku af hlutum sem við höfum enga þörf fyrir. Undirrituð þekkir slíkt af eigin raun. Minna er yfirleitt betra og með þessu trendi lærum við kannski að skipuleggja betur hvað þarf og hvað má missa sín þegar við höldum út í daginn. Þó handtöskurnar í þessu sniði sýni meiri mýkt þá eru þær samt sem áður sá fylgihlutur sem gefur merkinguna „business“ sé hann notaður við réttu flíkurnar. Það má vel nota eldri töskur og stytta í þeim böndin með áberandi hnút á hliðinni, þannig náum við sams konar lúkki. Ef við viljum nýja og ferska, þá eru meðfylgjandi hugmyndir úr íslenskum verslunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×