Lífið

Mikki refur kætir gesti og gangandi á Vestfjörðum

Bjarki Ármannsson skrifar
Heimilishundarnir tveir eru miklir vinir Mikka.
Heimilishundarnir tveir eru miklir vinir Mikka.
Refurinn Mikki hefur undanfarna mánuði vakið athygli og kátínu gesta í Heydal á Vestfjörðum, enda með eindæmum hændur að mönnum. Að sögn Stellu Guðmundsdóttur, gestgjafa í Heydal, er Mikki mikill skemmtimaður og heimilishundarnir tveir miklir vinir hans þó að hann eigi það til að bíta í skottið á þeim.

„Það var refaskytta sem kom með hann til okkar í vor,“ segir Stella. „Þá var hann svo til nýfæddur. Þannig að við byrjuðum á því að fóðra hann. Svo er spurningin hvað hann gerir í vetur, hvort hann fer upp í fjöll og finnur sér svæði eða hvað hann gerir.“

Mikki er fjórði yrðlingurinn sem gestgjafarnir í Heydal hafa alið upp síðastliðin sumur. Hann þykir óvenju hændur að mönnum, jafnvel á hann það til að ráðast á fólk þannig að það þarf að sparka honum af sér.

Ferðamenn sem heimsótt hafa Heydal í sumar hafa verið duglegir að deila myndum af Mikka á samfélagsmiðlum, enda flestir óvanir því að vera í svona miklu návígi við refi. Stella segir Mikka mjög vinsælan hjá gestum, þó það þurfi að vara þá við honum.

„Hann stelur öllu steini léttara, svo þau þurfa að passa að skilja ekkert eftir fyrir utan herbergin,“ segir hún. Hann stökkvi jafnvel inn í bíla þegar tækifæri gefst og taki þaðan sokka, húfur, vettlingar og fleira.

„Og það er ekki alltaf sem þau ná hlutunum aftur af honum,“ segir Stella og hlær. „Hann fer undir einn sumarbústaðana hér með það sem hann nælir sér í.“

Sem fyrr segir er óvíst hvenær Mikki kýs að fara af bænum þó þeir yrðlingar sem hafa eytt sumrinu í Heydal til þessa hafi allir leitað upp í fjöll með vetrinum, þar sem ókunn örlög bíða þeirra.

„Þessir refir sem eru hér eru svo hændir að mönnum að það er mjög líklegt að þeir verði refaskyttum að bráð,“ segir Stella. „Því þeir óttast ekki manninn. En þeir hafa þá fengið sumarið, sem þeir hefðu annars ekki fengið.“

Hér fyrir neðan má sjá bráðskemmtilegt myndband sem Facebook-síðan Vestfirðir tók af Mikka og öðrum heimilishundinum að leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.