Já-ið breyttist í nei þegar hakkarans var leitað Jakob Bjarnar skrifar 12. október 2015 16:35 Hin umdeilda könnun Útvarps Sögu, um hvort treysta megi Bubba Morthens, ætlar að draga dilk á eftir sér.
Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri segir tölvuárásirnar á Útvarps Sögu setja allar skoðanakannanir á Íslandi í uppnám. „Sú er spurning dagsins,“ segir Arnþrúður: Sá er lærdómurinn.Útvarp Saga greindi frá því á vefsíðu sinni á fjórða tímanum að útvarpsstöðin hefði mátt sæta árásum harðsvíraðs tölvuhakkara. Vísir náði í útvarpsstjórann skömmu áður en hún hljóp í útsendingu en þar ætlar hún einmitt að fara að fjalla um tölvuárásirnar sem Útvarp Saga mátti sæta aðfararnótt laugardags. Þá mun hakkari hafa sett upp sjálfvirkan búnað sem dældi inn „já“ við hinni umdeildu könnun Útvarp Sögu: „Treystir þú Bubba Morthens?“ Þrátt fyrir að umræddur einstaklingur hafi greitt Bubba rúmlega 40 þúsund já birtust lesendum síðunnar þau sem „já“ til að byrja með en breyttust svo skyndileg í „nei“.Hvernig breyttist jáið í nei?En, þá er spurningin hvernig þessi „já“ breyttust í „nei“? „Það er bara partur af því þegar við uppgötvuðum að verið væri að dæla inn þessum atkvæðum inn öll á jái. Könnuninni var í raun lokið, þá er sett inn, greinilega einhver róbott eða autoclicker, dælir inn jáum með nokkurra sekúndna millibili. Þegar þegar náum að stoppa það voru komin 40 þúsund og 95 „já“, og sérfræðingur okkar náði ip-tölunni.“En, af hverju breyttist þetta „já“ hakkarans í „nei“? „Við í sjálfu sér gerðum ekkert með það. Könnunin var ekkert lengur. Það var bara verið að rannsaka hvernig þetta var gert. Partur af því. Könnunin var orðin algert ómark, það var ekkert að marka þessa könnun eftir klukkan 23:55 að kvöldi föstudags.“Já, breyttuð þið þá „já-inu“ í „nei“ til að stríða hakkaranum? „Nei, þetta er algert aukaatriði í málinu. Enda var þetta ekkert niðurstaða, bara partur af því að finna út úr því hvernig þetta var gert. Það var engin könnun gild faktískt þó við værum ekki búin að fjarlægja þetta út. Allt ein og sama kennitalan. Svakalegt. Svarið sem ég fæ að þetta séu menn af þeim styrkleika að þeir geti farið inní hvaða tölvukerfi sem er.“Arnþrúður ætlar Bubba það ekki að hafa staðið að baki tölvuárásunum á Útvarp Sögu, en sennilega er þar á ferðinni harður aðdáandi Bubba.Ætlar Bubba það ekki að hafa staðið að baki árásunumArnþrúður segir þessa tölvuárás alvarlega, þetta sé í fyrsta skipti sem þau á Útvarpi Sögu hafa lent í slíku og þá ekki af miklu tilefni. Heldurðu nokkuð að Bubbi Morthens hafi staðið sjálfur að baki þessu? „Nei, ég ætla honum það nú ekki. En þetta segir okkur að það er allskonar lið sem til sem er til í hvað sem er.“En, þetta hlýtur þá að hafa verið einhver mjög harður Bubba-aðdáandi? „Já, eða þetta er einhver sem vildi tryggja að Bubbi fengi nógu mörg já. En, við höfum verið með þessar skoðanakannanir í mörg herrans ár, ekki vísindalegt heldur meira til gamans.Útvarp Saga vildi fá að vita hvort hlustendur treysta þessum manni eða ekki, og sú spurning hefur nú undið uppá sig.En samt oft vísbending um strauma og stefnur. Ekki að þetta sé vísindalegar niðurstöður, ekki tekið því hátíðlega, bara að þetta sé hægt segir manni að það er hægt að gera þetta við allar kannanir á Íslandi,“ segir Arnþrúður.Fylgi Pírata kannski falsað?En, aðalatriðið er samt það að nú er ekki hægt að treysta neinum fylgiskönnunum, að mati útvarpsstjórans, sem nú er reynslunni ríkari eftir að hafa lent í harðsvíruðum tölvuþrjóti. „Það er hægt að fara inn hjá Gallup og öllum þeim sem eru með svona skoðanakannanir og breyta niðurstöðunum. Hvað er nú að marka stuðning við stjórnmálaflokkana, þetta gerist allt á netinu. Menn eru ekkert að gera þetta í síma lengur, aðferðarfræðin er breytt.“Arnþrúður veltir því nú fyrir sér hvort það sé eitthvað að marka þetta mikla fylgi sem Píratar hafa verið að fá í skoðanakönnunum?Arnþrúður segist aldrei geta treyst skoðanakönnunum eftir þetta og þetta hljóti að vera eitthvað sem stjórnmálaflokkarnir taki til alvarlegrar skoðunar. En, hver hefur nú helst verið að skína í þessum skoðanakönnunum? Eru það ekki sjálfur netflokkurinn, Píratar? „Jahh, hefur einhver könnun verið gerð um fylgi Pírata sem ekki er netkönnun? Getur einhver svarað því? Mér finnst það vera spurning dagsins.“
Tengdar fréttir Útvarp Saga: Hakkari í Sviss greiddi Bubba 40 þúsund atkvæði á einu bretti Forsvarsmenn Útvarps Sögu segja um að ræða tölvuhakkara sem gætu farið inní öll helstu tölvukerfi heims og breytt réttum upplýsingum. 12. október 2015 15:38 Að minnsta kosti 1300 treysta ekki Bubba Morthens Ekki hefur staðið á undirtektunum frá því að Útvarp Saga setti merkilega skoðanakönnun í loftið í dag. 9. október 2015 20:46 Umdeild könnun á Útvarpi Sögu: Langflestir treystu Bubba í gær en 5% í dag Niðurstöður skoðanakönnunar á vef Sögu eru nokkuð dularfullar. 11. október 2015 16:24 Pétur á Útvarpi Sögu um ummæli Bubba: „Ekkert áfengi hér“ Útvarp Saga spurði hlustendur hvort þeir treystu tónlistarmanninum Bubba Morthens. 9. október 2015 14:21 Mest lesið Með húsaflutninga á heilanum Lífið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Lífið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Lífið Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Lífið Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Eliza Reid og Ásdís Spanó létu sig ekki vanta í Núllið Covidsmitaður Al Pacino var nær dauða en lífi Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Með húsaflutninga á heilanum Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Sjá meira
Útvarp Saga: Hakkari í Sviss greiddi Bubba 40 þúsund atkvæði á einu bretti Forsvarsmenn Útvarps Sögu segja um að ræða tölvuhakkara sem gætu farið inní öll helstu tölvukerfi heims og breytt réttum upplýsingum. 12. október 2015 15:38
Að minnsta kosti 1300 treysta ekki Bubba Morthens Ekki hefur staðið á undirtektunum frá því að Útvarp Saga setti merkilega skoðanakönnun í loftið í dag. 9. október 2015 20:46
Umdeild könnun á Útvarpi Sögu: Langflestir treystu Bubba í gær en 5% í dag Niðurstöður skoðanakönnunar á vef Sögu eru nokkuð dularfullar. 11. október 2015 16:24
Pétur á Útvarpi Sögu um ummæli Bubba: „Ekkert áfengi hér“ Útvarp Saga spurði hlustendur hvort þeir treystu tónlistarmanninum Bubba Morthens. 9. október 2015 14:21