Brimborg frumsýnir tvo Volvo bíla Finnur Thorlacius skrifar 29. október 2015 15:06 Volvo V60 Cross Country. Volvo
Nýir Volvo S60 Cross Country og Volvo V60 Cross Country verða frumsýndir laugardaginn 31. október í sýningarsal Volvo hjá Brimborg, Bíldshöfða 6, milli kl. 12 og 16.S60 Cross Country og V60 Cross Country eru sterkbyggðir og fágaðir. Þeir sameina kosti fólksbíla og jeppa með því að taka það besta frá báðum. Þeir geta tekist á við erfiða vegi en búa þó enn yfir kvikum aksturseiginleikum fólksbíla. Veghæðin er heilir 20 cm og dekkin eru stór, eða 18 tommu. Á S60 Cross Country og V60 Cross Country eru allir vegir færir í öllum veðrum. Um er að ræða frábæra valkosti fyrir unnendur hönnunar, náttúru og ævintýra.Volvo V60 Cross CountryV60 Cross Country er glæsilegur station bíll. Hann er ríkulega búinn staðalbúnaði eins og vélarhitara með tímastilli, tölvustýrðri loftkælingu (ECC), Volvo High Performance hljómtækjum, Bluetooth GSM símkerfi og hinu margverðlaunaða öryggiskerfi Borgaröryggi (City Safety). Á bílnum eru glæsilegir Cross Country þakbogar, sílsalistar, vindkljúfasett og hann kemur á voldugum 18 tommu Neso álfelgum. Hann er fáanlegur frá 6.190.000 kr. Hægt er að velja um tvær útfærslur: Momentum eða Inscription.Volvo S60 Cross CountryS60 Cross Country er í grunninn eins og V60 Cross Country, nema fjögurra dyra. Hann er fáanlegur í Inscription útfærslu á verði frá 6.260.000 kr. Meðal staðalbúnaðar er leðurinnrétting, TFT digital skjár í mælaborði, rafdrifið ökumannssæti með minni, krómlisti á framstuðara, armpúði milli aftursæta með glasahöldurum, vélarhitari með tímastilli, tölvustýrð loftkæling (ECC), Volvo High Performance hljómtæki, Bluetooth GSM símkerfi og hið margverðlaunaða öryggiskerfi Borgaröryggi (City Safety). Á bílnum eru glæsilegir Cross Country sílsalistar, vindkljúfasett og hann kemur á 18 tommu Neso álfelgum.Sparneytin Drive-E dísilvél Volvo leggur mikið upp úr því að bjóða bíla sem hafa sem minnst áhrif á umhverfið. Volvo Drive-E vélarnar eru sparneytnar og losa lítið af koltvísýringi. Þær gefa þó ekkert eftir þegar kemur að framúrskarandi akstursupplifun. Volvo S60 Cross Country og V60 Cross Country eru knúnir sparneytinni en aflmikilli tveggja lítra Drive-E dísilvél sem skilar 190 hestöflum. Eldsneytisnotkun (beinskiptur/sjálfskiptur) í blönduðum akstri er 4,2/4,6 l/100 km og koltvísýringslosun er 111/120 g/km. Báðir bílarnir eru fáanlegur fjórhjóladrifnir (AWD) með 2,4 lítra dísilvél.Volvo S60 Cross Country.
Mest lesið „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Innlent Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Erlent Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Innlent Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Erlent Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Erlent Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira Innlent Úkraínufundinum í London frestað Erlent Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Erlent