Lífið

Nýtt myndband frá KSF: Tóku upp inni í fataskáp út í Svíþjóð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Flott lag frá þeim félögum.
Flott lag frá þeim félögum. vísir
„Hugmyndin að laginu kom þegar við vorum að spila á Going Somewhere Festival í Danmörku fyrir stuttu en það var með okkur Jakob Reynir a.k.a JKB,“ segir Friðrik Thorlacius, einn af meðlimum í dúóinu KSF, sem var að gefa frá sér nýtt tónlistarmyndband.

„Við vorum að hlusta á einhvern plötusnúð og vorum að diskútera tónlist og þá spratt upp sú hugmynd að gera samstarf. Ákveðið var að remixa gullmolann „You Got The Love“ með hljómsveitinni The Source.“

Friðrik segir að maður hlaupi ekki í svoleiðis verkefni nema að vita hvað maður ætli að gera.

„Og sérstaklega þarf að vanda sig til verka og hrósa upprunalegu útgáfunni. Ekki leið á löngu að við fórum upp í íbúð þar sem að við gistum hjá Önnu Dóru vinkonu okkar og vorum með tölvuna með og byrjuðum bara á þessu.“

Sjá einnig: Íslendingar í efsta sæti í remix-keppni

Þeir félagar byrjuðu á því að setja saman píanó línuna og svo voru raddirnar teknar upp.

„Myndbandið er virkilega skemmtilegt og tekið upp í fataskáp í húsinu okkar hérna í Svíþjóð þar sem að við notuðum svört löng gluggatjöld til að búa til svartan bakgrunn, vorum með Canon 600D myndavél og límdum sama Ipod-inum á gítarstatíf sem að náði hátt til lofts og lýsti nægilega vel í andlitin sem að Arna Viktoría málaði líka svona ógeðslega flott á okkur öll.“

Friðrik segist vera óendanlega þakklátur fyrir allan þann stuðning og ást sem að KSF hefur fengið í gegnum árin .

„Við vildum sýna þakklætið til baka með því að bjóða fólkinu okkar á Íslandi að vera með í myndbandinu. Þá báðum við fólk um að senda okkur stutt myndbönd eða ljósmynd tekna einfaldlega á síma með hjartamerkið í forgrunni sem að er aðal conceptið á bakvið lagið og myndbandið í ljósi þess að allir eru fallegir að innan sem utan.“

Hér að neðan má sjá myndbandið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×