Lífið

Nóvemberspá Siggu Kling – Vog: Sýndu auðmýkt og hógværð

Elsku besta vogin mín. Það er ást og elska allt í kringum þig frá þeim sem skipta þig einhverju máli. Og mundu að það er allt sem þarf.

Þú átt eftir að fá svo mikinn stuðning frá þínu fólki og þú átt eftir að kunna að meta hann. Fólkið þitt eru ljósverurnar þínar. Sálin þín hefur háa og mikla tilfinningagreind og þú ert mikill mannþekkjari.

Láttu enga fordóma vera að flækjast fyrir þér og hafðu ekki skoðun á öllu. Þó að þú hafir rétt fyrir þér þá þurfa ekki allir að vita af því alltaf. Sýndu auðmýkt og hógværð og fáðu ráð hjá þessu dásamlega fólki sem er í kringum þig við að taka réttar ákvarðarnir og sjáðu að um leið og þú tekur ákvörðun minnkar kvíðinn.

Þú ert að detta í lukkupottinn í sambandi við vinnu, verkefni eða tilboð og gerðu meira en þú þorir. Það hefur alltaf reynst þér best!

Þú ert að fara inn í svo dásamlegt tímabil þar sem þú átt eftir að finna hvað þú hefur mikla ánægju af því að lifa. Þegar þú færð þessa vellíðunartilfinningu skaltu skrifa niður hvað það er sem lætur þér líða svona vel. Þá færðu meira af gleði og hamingju og það er allt sem þarf.

Haustið er þinn tími og þá sérstaklega október, nóvember og desember. Tíðni ástarinnar er að hækka hjá þér og þú ert á réttri leið.

Mottó: Ég ætla að knúsa lífið

Frægir í voginni: Glúmur Baldvinsson stjórnmálafræðingur, Hjalti flugþjónn, Ingi í Sign, Jón Axel Ólafsson athafnamaður, Matt Damon leikari, Íris Berg, fatahönnuðurinn minn, Mary Poppins, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra og sjónvarpskona, Hanna Birna Kristjánsdóttir þingkona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.