Lífið

Íslenskar dægurflugur og eitt krefjandi verk

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
„Það gefur augaleið að ég er í skemmtilegu starfi,“ segir Össur Geirsson, stjórnandi Skólahljómsveitar Kópavogs.
„Það gefur augaleið að ég er í skemmtilegu starfi,“ segir Össur Geirsson, stjórnandi Skólahljómsveitar Kópavogs. Vísir/GVA
Lög eins og Draumur um Nínu, Bláu augun þín, Tvær stjörnur og Dimmar rósir eru á dagskrá Skólahljómsveitar Kópavogs á tónleikum í Háskólabíói í kvöld.

„Við erum alltaf með stóra tónleika haust og vor og oft með létt þema á hausttónleikunum. Núna höfum við íslenska tónlist sem leiðarljós og spilum mörg dægurlög,“ segir Össur Geirsson, stjórnandi sveitarinnar.

Eitt verkið er þó af öðrum toga. Það er Suite Arktica II sem Páll Pampichler Pálsson samdi fyrir íslenskar skólalúðrasveitir árið 2001 og var frumflutt á hljómsveitamóti í Reykjanesbæ það ár.

Viku seinna var Skólahljómsveit Kópavogs á ferðalagi í Graz í Austurríki, heimabæ Páls og bauð honum á tónleika, það var í fyrsta skipti sem hann heyrði verkið flutt og var voða kátur, að sögn Össurar.

„Við tökum það upp núna því krakkarnir þurfa líka svolítið krefjandi verk að vinna með, þó að við höfum léttmeti í fyrirrúmi. Þannig fá líka flestir áheyrendur eitthvað við sitt hæfi.“

Skólahljómsveit Kópavogs er tónlistarskóli og þeir 150 nemendur sem spila í kvöld eru ekki allir á sviðinu í einu, heldur er skipt í þrjár hljómsveitir eftir aldri og getu.

„Börnin þurfa að ná ákveðnum prófum til að sanna getu sína og komast upp í næsta hóp.

Sveitin er grunnskólastofnun þannig að krakkarnir hætta í kennslustundum hjá okkur eftir 10. bekk en mörgum finnst svo gaman að þeir halda áfram að spila með hljómsveitinni þó þeir fari í aðra tónlistarskóla,“ útskýrir Össur.

 Í nær 50 ára sögu Skólahljómsveitar Kópavogs eru aðeins tveir stjórnendur svo þeir eru augljóslega ekki síður ánægðir en krakkarnir. Össur kveðst hafa byrjað árið 1993.

„Þú hefur kannski fylgst með því að launin eru ekkert til að hrópa húrra fyrir.“ segir hann. „Það gefur því augaleið að ég er í skemmtilegu starfi, annars væri ég farinn.“

Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 19.30. Aðgangseyrir er 1.300 fyrir 16 ára og eldri en ókeypis fyrir börn 15 ára og yngri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×