Körfubolti

1. deildarlið Þórs stóð í Íslandsmeisturum KR | Sjáðu lokamínúturnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Íslandsmeistarar KR máttu hafa sig allan við gegn 1. deildarliði Þórs í bikarkeppni KKÍ í gær. KR vann að lokum sigur, 87-84, eftir æsispennandi lokamínútur.

KR-ingar lentu í stökustu vandræðum með hinn hávaxna Tryggva Snæ Hlinason, leikmann Þórs, sem er aðeins átján ára gamall. Tryggvi Snær skoraði 20 stig í leiknum og tók 14 fráköst.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi frá Þór var gríðarleg stemning í íþróttahöllinni á Akureyri og var allt á suðupunkti þegar heimamenn héldu í sókn á lokamínútunni, einu stigi undir.

KR-ingar unnu þó boltann og komust á vítalínuna, þar sem þeir kláruðu leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×