Leikjavísir

Box Island kominn út á heimsvísu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Markmið leiksins er að kynna krökkum fyrir forritun.
Markmið leiksins er að kynna krökkum fyrir forritun. Radiant Games
Íslenska sprotafyrirtækið Radiant Games gaf í dag út forritunarleikinn Box Island: One Hour Coding fyrir Android og IOS snjallsíma- og tölvur. Útgáfan er sérstaklega hönnuð fyrir Hour of Code viðburðina sem haldnir verða út um allan heim í byrjun desember.

Radiant Games gaf út leikinn Box Island á Íslandi fyrr í haust. Leikurinn er ætlaður krökkum og er það markmið hans að auðvelda þeim að læra og skilja forritun auk þess sem hann á að efla rökfræðilegan hugsunarhátt. Útgáfan sem nú er komin út er hluti af Hour of Code sem samtökin Code.org standa að og mun leikurinn nú vera gefin út á heimsvísu.

Sjá einnig: Markmiðið að gera besta leikinn á heimsvísu sem kynnir forritun fyrir krökkum

Margir af helstu tæknifrumkvöðlum heims á borð við Bill Gates og Mark Zuckerberg koma að samtökunum. Markmið þeirra er að breiða út boðskap og mikilvægi tölvunarfræði og forritunar á heimsvísu og með Hour of Code framtakinu er ætlað að sýna krökkum fram á að auðvelt sé að læra forritun.

Til þess eru haldnir yfir 100.000 viðburðir á vegum Code.org þar sem tugir milljóna nemenda stíga sín fyrstu skref í forritum. Að þessu sinni fer Hour of Code fram vikuna 7-13. desember og hafa 80.000 viðburðir verið skráðir til þáttöku í ár, þar á meðal 25 viðburðir í skólum hér á Íslandi.

Sjá einnig: Sækja á heimsmarkað

Leikurinn Box Island gerist á ævintýraeyjunni Box Island þar sem spilarar fylgja aðalsöguhetjunni Hero. „Krakkar þurfa að beita grunngildum forritunar og forrita hvaða leið Hero þarf að fara til að komast áfram,“ sagði Vignir Örn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Radiant Games, í samtali við Vísi.

Fyrirtækið stefnir að því að gefa út aðalútgáfu Box Island í upphafi desembe-rmánaðar. Nefnist hann Box Island: Epic Coding Adventure. Í samtali við Vísi fyrr á árinu sagði Vignir að fyrirtækið ætli sér að búa til besta leikinn á heimsvísu sem kynnir grunngildi forritunar fyrir krökkum.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eru viðburðir á vegum Hour of Code á dagskrá um allan heim.

Allt í allt eru 82.805 viðburðir komnir á dagskrá, þar af 25 á Íslandi.Hour of Code

Tengdar fréttir

Sækja á heimsmarkað

Sprotafyrirtækið Radiant Games stefnir á að gefa út leik sinn, Box Island, á heimsvísu í næsta mánuði.








×