Lífið

Sjáðu fyrsta sýnishornið úr framhaldsmynd Finding Nemo

Bjarki Ármannsson skrifar
Framhaldsmynd hinnar geysivinsælu teiknimyndar Finding Nemo, eða Leitin að Nemo, verður frumsýnd næsta sumar. Gleymni fiskurinn Dory, sem Ellen DeGeneres ljáði rödd sína, verður aðalpersóna framhaldsmyndarinnar sem mun bera heitið Finding Dory, eða Leitin að Dory.

Fyrsta stikla myndarinnar er nú komin út og var hún frumsýnd í vinsælum spjallþætti DeGeneres. Hana má sjá hér að ofan.

Ásamt þeim DeGeneres og Albert Brooks, sem talaði fyrir trúðfiskinn Marlin í fyrri myndinni, munu leikarar á borð við Diane Keaton, Idris Elba og Ty Burrell tala fyrir hinar ýmsu sjávarskepnur í myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.