Lífið

Adele fór í áheyrnaprufu fyrir Adele-eftirhermur

Birgir Olgeirsson skrifar
Það verður að segjast að gervi Adele var frekar vel heppnað.
Það verður að segjast að gervi Adele var frekar vel heppnað. Vísir/Youtube
Breska tónlistarkonan Adele tók þátt í stórskemmtilegum hrekk með spjallþáttastjórnandanum Graham Norton þar sem hún brá sér í dulargervi Adele-eftirhermu.

Söngkona fékk hárkollu, gervinef og höku og fékk nafnið Jenny áður en hún fór í áheyrnaprufu fyrir Adele-eftirhermur í Wimbledon-leikhúsinu.

Þar barðist hún við 9 aðrar Adele-eftirhermur um hlutverk í þessari sviðsettu áheyrnarprufu. Þóttist Adele vera afar stressuð fyrir sinni prufu og lék sér að því að missa af innkomu inn í eitt af frægari lögum sem hún hefur flutt, Make You Feel My Love eftir Bob Dylan.

Það er kostulegt að fylgjast með því þegar eftirhermunum varð það ljóst að þær voru að fylgjast með hinni einu sönnu Adele á sviði.


Tengdar fréttir

Adele skellir á Silvíu

Breska söngkonan gefur ekki mikið fyrir skrípalæti þeirrar íslensku í nýju myndbandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.