Jólapeysan er farin af stað Stefán Árni Pálsson skrifar 20. nóvember 2015 13:00 Saga Garðars flott. vísir
Barnaheill hleypa nú af stokkunum jólapeysukeppni í tengslum við fjáröflunarátakið Jólapeysuna 2015. Þetta er þriðja árið í röð sem Jólapeysan fer fram og nú er safnað fyrir sýrlenskum flóttamönnum. Einstaklingar og fyrirtæki eru hvött til að taka þátt og nýta sér þetta skemmtilega átak í jólaundirbúningnum og láta gott af sér leiða í leiðinni. Jólapeysukeppnin sjálf fer fram áheitasíðunni jolapeysan.is og á Instagram á myndum sem merktar eru kassamerkinu #jolapeysan. Sérstök dómnefnd mun velja úr jólapeysum og verðlaun verða afhent þegar átakið nær hámarki þann 19. desember. Veitt verða verðlaun í fimm flokkum, fyrir frumlegustu, ljótustu, fallegustu, vinsælustu og mest hipp jólapeysuna. Áheitaféð mun renna til verkefna Barnaheilla - Save the Children sem snúa að móttöku og mannúðaraðstoð fyrir sýrlensk flóttabörn og fjölskyldur þeirra í móttökulöndunum við Sýrland. Nú þegar veturinn er brostinn á er þörf fyrir aðstoð mikil. Samtökin starfa í flestum þeim löndum sem flóttamennirnir fara um, en áhersla er á að útvega fólkinu skjól, dreifa hlífðarfatnaði, mat, teppum og öðrum lífsnauðsynjum. Saga Garðarsdóttir, leikkona, er andlit Jólapeysunnar 2015. „Það er gaman að fylgjast með þessari skemmtilegu hefð þróast. Okkur finnst sérstaklega gaman að sjá þá stemningu sem skapast á vinnustöðum, skólum og í heimahúsum þegar fólk tekur þetta alla leið með jólapeysupartýum,“ segir Erna Reynsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. „Málefnið er afar þarft. Nú þegar vetur er genginn í garð er gífurleg þörf á mat, teppum, hlífðarfatnaði og öðrum nauðsynjum sem Barnaheill - Save the Children dreifa til sýrlenskra flóttamannafjölskyldna.“ Vefsíðan átaksins var opnuð í dag og má skoða hana hér.
Mest lesið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir Sjá meira