Lífið

Kim og Kanye búin að nefna soninn

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Fjölskyldan Kanye, North og Kim.
Fjölskyldan Kanye, North og Kim. VÍSIR/GETTY IMAGES
Jólin komu snemma í ár hjá stjörnuhjónunum Kim Kardashian og Kanye West en þeim fæddist sonur á laugardag.

Þau skötuhjúnin voru ekki lengi að finna nafn á soninn en hann mun bera nafnið Saint West - sem gæti útlagst sem Hið heilaga vestur eða Vesturdýrlingur.

Margir höfðu áður veðjað á að hann hlyti nafnið Easton til þess að tóna við systur sína, North, sem fæddist í júní árið 2013.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×