Fyrirsæturnar komu inn á tískupallinn úr Metro-stöð, en sviðið var eins og gata í París.
Svört blúnda var áberandi á sýningunni, og þá sérstaklega í sokkabuxunum sem líklegt er að verði vinsælt. Svartir blúndukjólar, slaufur, þykkar kápur sem hvíldu á öxlunum ásamt beinsniðnum buxum úr tweed efni var meðal þess sem sást á sýningunni.
Hárið var stórt og í anda sjöunda áratugarins og förðunin dökk, seyðandi og rokkuð.
En leyfum myndunum að tala sínu máli.







