Lífið

Vill sjá stuðning í verki

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Emmsjé Gauti ætlar að styðja börn flóttamanna með því að koma fram á tónleikunum í kvöld.
Emmsjé Gauti ætlar að styðja börn flóttamanna með því að koma fram á tónleikunum í kvöld. vísir/pjetur
„Ég held þetta sé nítjánda árið okkar, annars erum við ekkert góðir að muna svona tölur,“ segir Þorkell Máni Pétursson útvarpsmaður á X-977, sem er einn af skipuleggjendum hinna árlegu Xmas tónleika sem fram fara í Hlégarði í Mosfellsbæ í kvöld. Allur ágóðinn af tónleikunum rennur í nýjan tómstundasjóð Rauða krossins sem notaður verður til styrktar börnum flóttafólks.

„Við höfum alltaf styrkt gott málefni og ágóðinn rennur óskiptur í tómstundasjóðinn til styrktar börnum flóttafólks. Þetta málefni er mjög viðkvæmt um þessar mundir og við viljum að þessir flóttamenn aðlagist samfélaginu og viljum aðstoða þá eins og við getum. Fólk hefur verið duglegt við að styðja flóttamenn á samfélagsmiðlun og nú er komið að því að styðja þá í verki þannig að ég býst við að fólk kaupi sér miða,“ segir Máni.

Frosti Logason og Máni Pétursson, útvarpsmenn á X-inu 977.Visir
Á tónleikunum koma fram nokkrir af vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar en það eru Dimma, Emmsjé Gauti, Júníus Meyvant, Kiriyama Family, Axel Flóvent, Markús & The Diversion Sess­ions, Himbrimi, Rythmatik, Kontinuum og VIO sem koma fram.

Tónleikarnir fara fram í Hlégarði sem er talið vera eitt glæsilegasta tónleikahús landsins. „Við ætlum að prófa að vera í Mosó. Þetta er alveg geggjað hús og við viljum líka með þessu draga fólkið úr bænum og látunum og leyfa því að njóta sín í Mosó,“ bætir Máni við.

Húsið er opnað kl. 19.30 og hefjast tónleikarnir kl. 20.00. Miðasala fer fram á miði.is og kostar hver miði 977 krónur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×