Lífið

Gerði breytingar á íbúð sinni til að sjá Eiffel-turninn út um gluggann - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtileg breyting.
Skemmtileg breyting. vísir
Eiffel-turninn er ein þekktasta bygging í heiminum og er í raun tákn fyrir Parísarborg. Fasteignaverð í kringum bygginguna er gríðarlega hátt og þykir það mjög ákjósanlegt að sjá turninn útum gluggann.

Franskur maður að nafni Lucas setti á dögunum inn myndband á YouTube þar sem hann gerði ákveðnar breytingar á íbúð sinni svo hann gæti horft á Effeil-turninn út um gluggann.

Íbúð hans er staðsett nokkuð nálægt turninum en vanalega sést ekki í hann út um gluggann. Lucas útbjó nokkuð sniðuga lausn með tveimur speglum og nú sést alltaf í Eiffel-turninn útum gluggann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×