Lífið

Opna meðferðarstofu gegn þynnku

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þetta gæti orðið vinsælt hér á landi.
Þetta gæti orðið vinsælt hér á landi. vísir
Ástralir hafa nú riðið á vaðið og opnað fyrstu þynnkustöðina í heiminum en þar getur maður mætt og fengið meðferð við þynnku.

Það þekkja það nú eflaust flestir fullorðnir að lenda í því að vakna mjög þunnur eftir skemmtilegt kvöld.

Meðferðin er einföld en þú mætir bara á staðinn, færð vökva í æð og allskonar vítamín. Það mun vera venjulegur pakki en einnig er hægt að versla sér einskonar lúxuspakka þar sem þú færð tvo lítra af vökva í æð, súrefni og enn fleiri vítamín. Sú meðferð kostar 25 þúsund krónur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×