Lífið

Íbúð með draumaútsýni í hjarta miðborgarinnar á 65 milljónir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Rosalega falleg íbúð.
Rosalega falleg íbúð. vísir
Fasteignasalan Miklaborg er með stórglæsilega 93 fermetra penthouse íbúð í hjarta miðborgarinnar til sölu á 65 milljónir króna.

Íbúðin er staðsett í Bankastrætinu og við hana er  56,5 fermetra suð/vestur svalir með vægast sagt frábæru útsýni yfir miðborgina.

Komið er inn í snyrtilegt sameiginlegan stigahús sem hefur verið nýlega tekið í gegn, skipt um teppi og það málað. Á stigapalli á þriðju hæði er inngangur inn í íbúðina.

Rúmgóð og björt stofa og borðstofa með upprunalegum gólfborðum og flísum á gólfi en þaðan er útgengt út á svalirnar.

Hjónaherbergi er með fatahengi og þar er parket á gólfi. Frá borðstofu er hringstigi upp í ris sem nýtt er sem herbergi. Það herbergi er skráð 13,6 fermetrar en gólfflöturinn er um 40 fermetrar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×