Lífið

Ákærður fyrir bónorð - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vidal Valladares gerir þetta vonandi bara einu sinni.
Vidal Valladares gerir þetta vonandi bara einu sinni. vísir
Vidal Valladares bað kærustuna sína um að giftast sér á miðri hraðbraut í Houston í Bandaríkjunum. Hann hefur nú verið ákærður fyrir bónorðið en mikil hætta skapaðist þegar hann skellti sér á skeljarnar.

Valladares hafði skipulagt bónorðið vel og allt gekk að óskum, þar til hann lét til skara skríða. Þá þurftu tugir ökumanna að kloss bremsa og hefði þetta getað endað með ósköpum.

Hér að neðan má sjá upptöku frá bónorðinu og viðtal við kappann. Sem betur fer sagði konan já.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×