Lífið

Þúsundir grenja af hlátri yfir frumraun Mike Tyson á svifbretti

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hnefaleikakappinn Mike Tyson ákvað að láta reyna á færni sína á svifbretti á hjólum sem dóttir hans fékk í gjöf þessi jólin. Tyson gerði gott betur en það og fékk einhvern til að taka frumraun sína upp á myndband.

Tyson virðist hafa ágætt jafnvægi, í það minnsta framan af í myndbandinu en svo gerist það. Kappinn fellur til jarðar með fádæma tilþrifum.

Meðalmaðurinn hefði örugglega fundið vel fyrir fallinu en Tyson er reyndar öllu vanur þegar kemur að byltum eftir áralangan feril í hnefaleikum.

Tyson birti myndbandið sjálfur á Twitter öðrum til mikillar skemmtunar. Greinilegt að kappinn hefur húmor fyrir sjálfum sér en undanfarin ár hefur hann ferðast um heiminn og sagt sögu sína með húmorinn að leiðarljósi.


Tengdar fréttir

Tyson er ekkert velkominn

Hópurinn Aktivistar gegn nauðgunamenningu hefur hafið undirskriftasöfnun gegn fyrirhugaðri sýningu Mike Tyson, sem væntanlegur er til landsins í haust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×