Lífið

Óskarinn 2015: John Travolta gerði grín að sjálfum sér

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Idina Menzel og John Travolta
Idina Menzel og John Travolta Vísir/getty
Flestir muna þegar John Travolta kynnti Frozen söngkonuna Idina Menzel sem Adele Nazeem á Óskarsverðlaunahátíðinni 2014. 

Kynnirinn Neil Patrick Harris rifjaði þetta upp þegar hann kynnti Menzel á svið sem Adele Dazeem. Menzel bætti um betur og uppskar mikinn fögnuð þegar hún kynnti vin sinn „Glom Gazingo“ á svið, sem var auðvitað enginn annar en Travolta sjálfur. 

Á Óskarsverðlaunahátíðinni að ári verður svo sennilega aftur gert grín að Travolta, en hann þótti snerta andlit söngkonunnar óeðlilega mikið. Að auki var hann með þykka keðju um hálsinn, undir skyrtukraganum, sem minnti óneitanlega á hundaól.

Fyrir þá sem ekki muna þá er hér myndband af mismælunum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.