Lífið

Örvæntingafull húsfrú trúlofar sig

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jose Antonio Baston og Longoria með hringinn glæsilega.
Jose Antonio Baston og Longoria með hringinn glæsilega. Af Instagram-síðu Longoriu
Leikkonan Eva Longoria, sem líkast til er best þekkt fyrir hlutverk sitt í þáttunum Desperate Housewives, þar sem hún fór með hlutverk Gabriellu Solis.

Longoria tilkynnti um trúlofun sína á Instagram þar sem áhugasamir gátu séð glæsilega trúlofunarhringinn. Hún hefur verið í sambandi með Jose Antonio Baston undanfarin þrjú ár.

„Ummmm so this happened....#Engaged #Dubai #Happiness,“ skrifaði Longoria á Instagram-síðu sína. Hún er því á leiðinni upp að altarinu í þriðja skipti en hún var áður gift Tyler Christopher í þrjú ár og körfuknattleikskappanum Tony Parker í fimm.

Ummmm so this happened....#Engaged #Dubai #Happiness

A photo posted by Eva Longoria (@evalongoria) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×