Bílar

Besti árangur Kia hjá J.D. Power

Finnur Thorlacius skrifar
Kia Soul EV.
Kia Soul EV.
Kia Motors hefur náð besta árangri í sögu fyrirtækisins í hinni virtu gæðakönnun J.D. Power. Kia er í öðru sæti yfir 33 bílaframleiðendur í gæðakönnuninni og hækkaði um fjögur sæti frá 2014 sem þá var besti árangur Kia frá upphafi.

Tveir af söluhæstu bílum Kia, Sorento og Soul, skoruðu hæst í sínum flokkum og Rio, Optima, Sportage, Cadenza og Sedona voru allir í efstu þremur sætunum í sínum flokkum. J.D. Power gæðakönnunin byggir ekki eingöngu á gögnum um bilanir í bílum heldur nær könnunin einnig til tæknibúnaðar og hvernig umgengni við hann er.

,,Við teljum að gæðakönnun J.D. Power sýni svo ekki verði um villst að Kia smíðar heimsklassa bíla. Niðurstöðurnar úr gæðakönnuninni eru sérstakelga ánægjulegar því þær endurspegla raddir viðskiptavina," segir Michael Sprague, einn af framkvæmdastjórum Kia Motors í Bandaríkjunum.

,,Vöxtur Kia er ein besta sagan um árangur fyrirtækis innan bílaiðnaðarins. Þessi árangur byggist á góðri og fagmannlegri vinnu þúsunda starfsmanna Kia um heim allan sem og langtíma áætlun um að einblína á að auka gæði og áreiðanleika bíla," segir hann.






×