Segja aðhaldstímabili í ríkisrekstri lokið Sæunn Gísladóttir skrifar 13. október 2015 09:54 Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs.
Viðskiptaráð Íslands fagnar áherslu á hraða niðurgreiðslu skulda og að hluta aukningar skatttekna sé skilað til baka í formi skattalækkana í nýjum fjárlögum. Hins vegar valda hratt vaxandi útgjöld áhyggjum, séu nýjustu launabreytingar meðtaldar segir ráðið fjárlögin tæplega geta talist hallalaus. Þetta kemur fram í umsögn Viðskiptaráðs um fjárlög 2016 til fjárlaganefndar Alþingis. Í umsögninni fagnar Viðskiptaráðið afnám tolla á allar vörur aðrar en matvörur, ráðið telur einnig lækkun tekjuskatts einstaklinga og fækkun skattþrepa framfaraskref. Raunar er það mat ráðsins að ganga megi lengra við lækkun skatta. Viðskiptaráðið gerir hins vegar athugasemdir við skort á aðhaldi þegar kemur að launakostnaði (15 milljarðar króna aukning) og öðrum útgjöldum. Ráðið hefur hins vegar áhyggjur af útgjöldum ríkisins. Í umsögninni segir að svo virðist sem aðhaldstímabili í ríkisrekstri sé lokið. Útgjaldaaukning ríkissjóðs nemur 27 ma. kr. á milli ára samkvæmt áætlun frumvarpsins, sem jafngildir um 4,9% hækkun. Ríflega helming aukningarinnar má rekja til hærri launakostnaðar. Auk vaxandi launakostnaðar marki fjárlagafrumvarpið stefnubreytingu þegar kemur að aðhaldi í opinberum rekstri. Ráðið gagnrýnir að stofnað sé til nýrra útgjalda sem nema 12 ma. kr. þar sem krafa um samdrátt útgjalda hjá ráðuneytum og stofnunum sé nú horfin. Þetta sé gert þrátt fyrir að efnahagsleg rök hnígi að því að auka aðhald í opinberum rekstri, ekki slaka á því, til að draga úr ofþenslu á því uppgangstímabili sem nú sé hafið hérlendis. Ráðið hvetur stjórnvöld til að finna leiðir til að draga úr opinberum útgjöldum í frumvarpinu og vísar til þess að það hafi bent á ýmis tækifæri til að veita opinbera þjónustu með með hagkvæmari hætti í stærstu málaflokkunum eins og mennta-, velferðar-, heilbrigðis-, og innkaupamálum.
Mest lesið „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Viðskipti innlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Sérkennileg“ hækkun íbúðaverðs á tímum hárra vaxta Leiguverð heldur áfram að hækka „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Leggja upp laupana í Lundúnum Annað tilboð borist í Skagann 3X Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Skúli í Subway reisir glæsihótel við Jökulsárlón Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Sjá meira