Í tilkynningu segir að Háskólinn á Bifröst hafi tekið miklum breytingum undir stjórn Margrétar. Beri þar hæst fjármál háskólans en Háskólinn á Bifröst er kominn í hóp fyrirmyndarfyrirtækja Creditinfo.
„Þá hafa gæðamál tekið stakkaskiptum. Aðrar stórar breytingar eru að ákveðið hefur verið að selja háskólasvæðið á Bifröst enda hafa náðst samningar við Húsnæðis og mannvirkjastofnun um fasteignir á svæðinu. Ein mesta breytingin er án efa sú að háskólinn ákvað að þiggja fulla opinbera fjárveitingu þannig að ekki eru lengur greidd skólagjöld við háskólann. Nemendafjöldi hefur nærri því þrefaldast við þá breytingu. Þá er háskólinn á Bifröst kominn í háskólanetið Op Eneu sem felur í sér stofnun Evrópska Opna Háskólans eftir fjögur ár í samstarfi við tíu evrópska fjarkennslu-háskóla.
Margrét sagðist þakklát fyrir það traust sem stjórnin ber til hennar og hlakkar til að takast á við verkefni komandi ára með sínu frábæra starfsfólki. Fyrst ber að nefna sameiningarviðræður við Háskólann á Akureyri, OpenEU verkefnið sem fór af stað nú í desember sem og sölu á háskólasvæðinu á Bifröst. Ársæll Harðarson stjórnarformaður Háskólans á Bifröst kvaðst ánægður með þessa niðurstöðu og er stoltur af þeim árangri sem Háskólinn hefur náð,“ segir í tilkynningunni.