Lífið

Syngur óhefðbundin lög alveg eins og Spears, Aguilera og Dion

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ariana Grande fór á kostum hjá Fallon
Ariana Grande fór á kostum hjá Fallon vísir
Ariana Grande-Butera var gestur í þættinum Tonight Show með Jimmy Fallon og tók hún þátt í leik sem Jimmy kallar Musical Impressions Generator.

Í þeim leik þurfa þau að syngja ákveðið lag með svipuðum tóni og frægir tónlistarmenn.

Ariana sló hreinlega í gegn þegar hún tók skemmtileg lög með sama stíl og rödd eins og Christina Aguilera, Celine Dion og Britney Spears. Fallon var nokkuð góður sem Sting.

Ariana er nokkuð þekkt söngkona um allan heima og komst hún fyrst sjónarsviðið þegar hún tók þátt í söngleiknum 13 á Broadway. Hún lék einnig Cat Valentine í sjónvarpsþáttunum Victorious á Nickelodeon sem hófu göngu sína árið 2009. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×