Lífið

Íslendingar eru komnir í beina útsendingu á Snapchat

Stefán Árni Pálsson skrifar
Nú geta notendur Snapchat sent inn myndir og myndbönd inn í sameiginlega sögu allra.
Nú geta notendur Snapchat sent inn myndir og myndbönd inn í sameiginlega sögu allra. vísir
Myndefni frá íslenskum notendum Snapchat fær nú að njóta sín um alla heimsbyggðina en íslenskir snapchat-notendur eru nú í beinni útsendingu á miðlinum.

Í gærkvöldi fóru að birtast skilaboð á íslensku sem birtust í símum notenda. Þar stóð: „Takið eftir: Ísland er í beinni á morgun.“

Snapchat velur reglulega einhvern stað í heiminum til að sýna frá beint. Í gær mátti til dæmis skoða myndefni frá Jamaíku og Balí. Notendur á þeim stað geta þá sent inn myndir eða myndskeið af sér og vinum og Snapchat teymið velur þau sem rata í streymið. (e. Live feed)

Þar sem talið er að Snapchat notendur um heim allan telji alls um 200 milljónir er þetta kjörið tækifæri fyrir framhleypna Íslendinga að senda inn skemmtilegar myndir af sér og reyna við heimsfrægðina.

Nánar um hvernig má taka þátt hér en nú þegar er hægt að bæta við myndum og myndböndum í „Our Iceland Story“ í smáforritinu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.