Sigurvegarar þrátt fyrir töp Kjartan Atli Kjartansson skrifar 15. september 2015 22:00 Körfuboltalandsliðið okkar og stuðningsmenn þess eru sigurvegarar. Óhætt er að segja að frammistaða liðsins í riðlakeppni Evrópumótsins í Berlín hafi verið framar björtustu vonum. Þarna mætti hið lágvaxna lið Íslands sannkölluðum risum í evrópskum körfuknattleik og hefur því verið haldið fram að aldrei hafi jafn mörg stórlið dregist saman í riðil á mótinu. Ef horft er á stigatöfluna, nú þegar riðlakeppninni er lokið, tapaði Ísland öllum leikjunum. En á sama tíma vann liðið, auk stuðningsmannanna, hug og hjörtu allra sem voru í Berlín. Eftir síðasta leikinn sem tapaðist fyrir Tyrkjum í framlengingu, tóku stuðningsmenn landsliðsins sig saman og sungu Ég er kominn heim eftirminnilega. Líklega hef ég sjaldan verið eins stoltur af því að vera Íslendingur og þegar ég sá þetta. Liðið var nýbúið að tapa í spennuleik, en í staðinn fyrir að gráta úrslitin fögnuðu stuðningsmennirnir frábærri frammistöðu. Fegurðin í augnablikinu var gríðarleg og fæ ég gæsahúð bara við að hugsa um þetta. Að mínu mati er þetta nákvæmlega það sem íþróttir eiga að snúast um, þetta er það sem við eigum að kenna ungu fólki sem stundar íþróttir. Sigrar og töp skipta litlu máli þegar maður gerir sitt besta. Körfuboltinn á Íslandi er í miklum vexti og hefur þróun leiksins á heimsvísu verið okkur í hag. Áður fyrr skipti meira máli að vera hávaxinn í körfubolta, en nú skipta hraði, leikni og hittni meira máli en áður. Þjálfarar landsliðsins eiga mikið hrós skilið fyrir hvernig þeir lögðu leikina upp, sérstaklega varnarleikinn, sem var frábær. Íslensku strákarnir spiluðu með hjartanu og stuðningsmennirnir hvöttu þá áfram af mikilli elju. Erlendir fjölmiðlar keppast um að lofa frammistöðu allra og heilluðu stuðningsmenn starfsmenn í höllinni í Berlín, sem skáluðu sérstaklega fyrir þeim að móti loknu. Ísland var sigurvegari á mótinu, þrátt fyrir að vinna ekki leik. Er til fallegri boðskapur? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Kjartan Atli Kjartansson Mest lesið Þarf háskólamenntað fólk til að kenna litlum börnum? Aldís Björk Óskarsdóttir Skoðun Öðruvísi Íslendingar Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Skoðun Halldór 19.10.24 Halldór Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við Ágústa Árnadóttir Skoðun Sögur ísraelska hermannsins Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Vala Árnadóttir Skoðun Kæru vinir og stuðningsfólk Halla Hrund Logadóttir Skoðun Háskóli Íslands styður þjóðarmorð Elí Hörpu og Önundarbur Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Vá! Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun
Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun
Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun