Lífið

Stoltur af Fast & Furious 7

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Vin Diesel er mjög stoltur af nýjustu mynd sinni, Fast & Furious 7.
Vin Diesel er mjög stoltur af nýjustu mynd sinni, Fast & Furious 7.
Leikarinn Vin Diesel er sérstaklega stoltur af nýjustu mynd sinni, Fast & Furious 7, svo stoltur að hann spáir henni Óskarstilnefningu.

„Hún vinnur örugglega sem besta myndin á hátíðinni 2016,“ sagði hann nokkuð öruggur með sig. Myndin er síðasta kvikmynd leikarans Pauls Walker, sem lést í bílslysi 30. nóvember 2013.

Diesel, sem framleiðir myndina, segir hana sennilega verða vinsælustu mynd Universal Pictures frá upphafi.


Tengdar fréttir

Óvíst hvort að Fast and the Furious haldi áfram

Óvissa ríkir um framtíð kvikmyndaseríunnar Fast and the Furious í kjölfar andláts Paul Walker um helgina. Stór hluti sjöundi myndarinnar í seríunni hefur verið festur á filmu en nú er ljóst að klára þarf tökur án Walker.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.