Lífið

Aðeins Adele getur bjargað vandræðalega fjölskylduboðinu

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þegar talið berst að flóttamönnum og minnihlutahópum er gott að eiga ás í erminni.
Þegar talið berst að flóttamönnum og minnihlutahópum er gott að eiga ás í erminni. skjáskot
Hvort sem það er matarboð í tengslum við Þakkargjörðarhátíðina eða fjölskylduboðið annan í jólum, sem Baggalútur söng um hér um árið, þá kannast flestir við stemmninguna sem myndast þegar stórfjölskyldan kemur saman.

Fjarskyldu frænkurnar og öldruðu frændurnir safnasta saman við matarborðið og deila sinni einstöku sýn á málefni líðandi stundar. Allir virðast vera á öndverðum meiði þó svo að fáir þori að andmæla því sem kann að koma fram í umræðunum milli rétta.

Á svoleiðis stundum er aðeins eitt sem getur komið í veg fyrir að allt springi í loft upp: söngkonan Adele.

Í glettilega góðri flugu úr þættinum Saturday Night Live má einmitt sjá dæmi um slíkt matarboð og hvernig söngkonan góðkunna nær að stýra umræðunum frá flóttamannavandanum og kynþáttahatri.

Þar bregður fyrir stórleikurum á borð við Matthew McConaughey sem lifir sig inn í tónsmíðar Adele rétt eins og aðrir gestir.


Tengdar fréttir

Hin eina sanna Adele

Í dag kom nýjasta plata söngkonunnar Adele, 25 út og er óhætt að segja að hennar hafi verið beðið með mikilli eftirvæntingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.