Lífið

Klæðir sig upp eins og poppstjörnur á Instagram

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Beyoncé og Mina flott á því.
Beyoncé og Mina flott á því.
Mina Greges, Kanadamaður sem býr í London í Ontario, hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hann klæðir sig upp eins og þekktar poppstjörnur og birtir myndir af sér.

Í samtali við Buzzfeed segir Mina að hann geri nánast allt sjálfur og það taki hann um tvo tíma að gera sig kláran fyrir hverja mynd. Hann segir að markmið sitt með myndunum sé að vekja fólk til umhugsunar um hvernig myndir af frægu fólki birtast í fjölmiðlum.

Mina segir til dæmis að mikil notkun myndvinnsluforritsins Photoshop leiði til þess að fólk fái óraunhæfar hugmyndir um hvernig líkami þess eigi að vera.

Nokkrar af myndum Minu má sjá hér að neðan.

Kim elskar Kanye en Mina elskar pizzur.
Ekki svo ólík.
Hér má ekki á milli sjá hvor er hin raunverulega Nicki Minaj.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×