Lífið

Strax byrjuð að ræða barneignir

Britney Spears íhugar barneignir.
Britney Spears íhugar barneignir. Vísir/Getty
Britney Spears er sögð vera strax byrjuð að ræða barneignir með kærastanum sínum Charlie Ebersol, þrátt fyrir að þau hafi aðeins verið saman í fjóra mánuði.

„Britney hefur sagt að Charlie vilji eignast sín eigin börn og telur að hún yrði fullkomin móðir fyrir þau,“ sagði kunningi parsins. Söngkonan á þegar tvö börn, hinn níu ára Sean og átta ára Jayden, með fyrrverandi eiginmanni sínum Kevin Federline.

Spears hefur verið að syngja í Vegas að undanförnu og um síðustu helgi fór kærastinn með henni. Ástin mun hafa blómstrað á milli þeirra. „Þau gátu ekki látið hvort annað í friði,“ sagði kunninginn.

Orðrómur er þegar kominn upp um að Ebersol, sem er 32 ára, ætli að bera upp bónorð á næstunni og að hann hafi beðið föður söngkonunnar um hönd hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×