Körfubolti

ÍR-ingar buðu upp á troðslusýningu í kvöld | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Trey Hampton treður boltanum í körfuna í kvöld.
Trey Hampton treður boltanum í körfuna í kvöld. Vísir/Valli
ÍR-ingar tryggðu sér áframhaldandi sæti í Dominos-deild karla í kvöld með 26 stiga sigri á Skallagrími, 99-73, og ÍR-liðið sendi um leið Fjölni og Skallagrím niður í 1. deildina.

Leikurinn var í beinni á Stöð 2 Sport og það hafði greinilega góð áhrif á Breiðhyltinga að vera í beinni því þeir voru tilbúnir í leik og upp á líf eða dauða.

ÍR-liðið gaf tóninn í byrjun leiks og Borgnesingar voru að elta allan tímann. Enginn var í meira stuði en Trey Hampton sem átti margar frábærar troðslur í leiknum.

Hér fyrir neðan má sjá myndband með tilþrifum úr leiknum í kvöld sem og fagnaðarlæti ÍR-inga í leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×