Finnur Freyr: Martin spilar ekki með KR Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. mars 2015 15:45 Martin Hermannsson kemur ekki til að bjarga KR ef Pavel verður lengur frá. vísir/valli
Eins og greint var frá fyrr í dag spilar Elvar Már Friðriksson með Njarðvík gegn Stjörnunni í Dominos-deild karla í kvöld. Með sigri tryggir Njarðvík sér heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Elvar Már stundar nám og spilar með LIU-háskólanum í Brooklyn, en tímabili liðsins er lokið eftir tap í úrslitakeppni NEC-deildarinnar. Hjá LIU Blackbirds spilar Elvar með KR-ingnum Martin Hermannssyni sem má, eins og Elvar Már, spila með KR hér heima á þessari leiktíð þar sem hann fékk ekki félagaskipti til annars liðs þegar hann fór í skóla.Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR.vísir/þórdís„Martin er bara í Orlando í góðu yfirlæti hjá Óskari Kristjánssyni,“ segir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, við Vísi aðspurður hvort KR-ingar ætli sömu leið. „Við munum ekki gera þetta. Martin er bara í sínum verkefnum úti. Auðvitað væri gaman að hafa Martin en hann er bara að gera annað og að sleikja sárin eftir tímabilið með LIU.“ Finnur sagði í viðtali við Vísi eftir leik KR gegn Þór í gær að Pavel Ermolinskij sé tæpur fyrir úrslitakeppnina. Samt sem áður verður ekki leitað til Martins. „Nei, því miður verður hann ekki með. Við erum með fínan mannskap og þeir sem hafa séð um þetta hjá okkur hingað til klára verkefnið,“ segir Finnur sem er þó í sambandi við Martin. „Ég tala mjög reglulega við hann. Þetta er eitthhvað sem við höfum grínast með en það er ekki í stöðunni að hann spili með okkur núna. Það er ekki möguleiki,“ segir Finnur Freyr Stefánsson.
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira