Bíó og sjónvarp

Everest á toppinn í tólf löndum

Birgir Olgeirsson skrifar
Baltasar á tökustað Everest myndarinnar.
Baltasar á tökustað Everest myndarinnar. vísir/getty
Kvikmynd Baltasars Kormáks, Everest, hefur gengið ágætlega í miðasölum kvikmyndahúsa víða um heim. Tekjur myndarinnar nema 26,5 milljónum dollara, sem nemur 3,3 milljörðum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag, í 36 löndum. Frá þessu er greint á vef bandaríska tímaritsins Variety.

Myndin fór beint á toppinn í Argentínu, Ástralíu, Búlgaríu, Ungverjalandi, Íslandi, Indlandi, Mexíkó, Nýja Sjálandi, Póllandi, Rúmeníu, Suður Afríku og Taívan.

Myndin var forsýnd í Bandaríkjunum í gær og þénaði 2,3 milljónir dollara, 290 milljónir króna, í 545 kvikmyndahúsum þar í landi. Telur Variety myndina eiga eftir að þéna um 7 milljónir dollara í Bandaríkjunum um helgina en myndinni verður dreift mun víðar um Bandaríkin um næstkomandi helgi.

Myndin var í öðru sæti topplistans í Bretlandi og á Írlandi en myndin sem vermir toppinn þar er Legend, þar sem Tom Hardy fer með hlutverk tvíburanna Reggie og RonnieKray sem eru einir þekktustu glæpamenn Bretlands og stjórnuðu valdamikilli glæpaklíku í London á sjöunda áratug síðustu aldar.

Í frétt Variety kemur fram að Everest hefur þénað um 32 þúsund dollara, um fjórar milljónir króna, það sem af er á Íslandi.


Tengdar fréttir

Ráðherrar lofa Everest

Nokkrir af ráðherrum þjóðarinnar voru staddir á frumsýningu Everest, stórmyndar Baltasar Kormáks. Lífið leitaði til ráðherranna og spurði þá hvað þeim fannst um myndina, sem hefur fengið jákvæð viðbrögð víða um heim.

Vilborg um Everest: Fangaði raunveruleikann

Vilborg Arna Gissurardóttir, reyndi við toppinn á Everest í fyrra og aðstoðaði við hjálparstörf eftir að mannskæðasta snjóflóð í sögu Evrest skall á 500 metrum fyrir ofan Grunnbúðirnar, þar sem hún dvaldi. Hún segir frá upplifun sinni af myndinni Evrest, eftir Baltasar Kormák.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.