Veiði

Nokkrir risar úr Affallinu

Karl Lúðvíksson skrifar
Halldór Gunnarsson með 91 sm lax úr Affallinu
Halldór Gunnarsson með 91 sm lax úr Affallinu
Affallið í Landeyjum hefur veið vinsælt veiðisvæði frá því að uppbygging hófst á því með sleppingum gönguseiða fyrir nokkrum árum.

Affallið er bæði aðgengilegt og skemmtilegt að veiða og það skemmir ekkert fyrir að vel veiðist í því en aflatalan í sumar er komin yfir 500 laxa. Besta sumarið í Affallinu var 2010 þegar 1021 lax veiddist en næstbesta sumarið var 2013 þegar 795 löxum var landað. Halldór Gunnarsson var við veiðar þar fyrir skömmu ásamt góðum hópi veiðimanna og er óhætt að segja að þeim hafi gengið vel en fyrir utan ágæta veiðiá hefðbundnum eins árs laxi fengu þeir tvo flotta laxa sem voru yfir 90 sm langir. Halldór sendi okkur smá frétt og myndir úr Affallinu.

"Áttum ágætt holl félagarnir í Affallið núna fyrir stuttu þó svo heildaraflinn hefði mátt vera meiri, en allir veiddum við bara á flugu. Í fallegu veðri þá er mjög gaman að fara í Affallið því þessi litla og netta á getur geymt margan risann. Fiskurinn var nokkuð vel dreifður um alla á og sáum töluvert af fiski hér og þar þó svo nokkrir staðir hafi verið að geyma meira en aðrir.

Náðum tveim risum í þessu sama holli sem eflaust telst nokkuð gott, 91cm hæng sem ég náði að krækja í og 93cm hrygnu sem Þorsteinn Stefáns náði, en báðir komu úr sama litla hylnum á litlar flugur. Einnig sáum við nokkra í sömu stærð. Skemmtileg á en við vorum sammála um að svona lítil og nett á ætti að hafa einhverja takmörkun á maðkaveiði því það er lítt gaman að koma að á eftir að hún hefur verið möðkuð í spað nokkrum tímum áður. :) Áttum samt skemmtilegar stundir við bakkann þarna".

 





×