Bílar

Forþjöppuhik úr sögunni hjá Volvo

Finnur Thorlacius skrifar
Í nýjum Volvo S90 bíl kynnir Volvo nýja tækni sem kemur í veg fyrir svokallað forþjöppuhik, sem eigendur bíla með forþjöppur þekkja vel og pirra sig yfir.

Hefðbundnar forþjöppur fara ekki að skila afli fyrr en vélin nær að pumpa í þær nægu lofti og það gerist yfirleitt ekki fyrr en snúningur vélanna fer á skrið. Oft líður meira en ein sekúnda frá því að stigið er hressilega á eldsneytisgjöfina þangað til forþjöppurnar fara að skila einhverju viðbótarafli.

Þessum biðtíma segir Volvo að þeim hafi tekist að eyða með nýrri “PowerPulse”-tækni þar sem háþrýst loft er geymt í 2 lítra tanki og við stig á eldsneytisgjöfina þrýstist loftið samstundis inní forþjöppuna og hún nær fullu afli strax.

Þetta krefst náttúrulega loftpressu sem sér til þess að háþrýst loft sá ávallt á þessum litla tanki. Með þessari tækni segir Volvo að teggja lítra díslvél þeirra í S90 bílnum tryggi honum hraðari upptöku en sambærilegir bílar að stærð með 3,0 lítra dísilvélum. Sjá má úskýringu á þessari nýju tækni Volvo í meðfylgjandi myndskeiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×