Bílasala GM minni en í fyrra Finnur Thorlacius skrifar 19. október 2015 11:19 Höfuðstöðvar General Motors í Detroit. Autoblog
Þó svo sala bíla sé stóraukin í sumum heimshlutum er hún dræm á mörgum stærri mörkuðum fyrir bíla. Þetta endurspeglast í minni sölu bíla hjá stærsta bandaríska bílaframleiðandanum, General Motors. GM hefur selt 1,3% færri bíla á fyrstu 9 mánuðum ársins en í fyrra. Salan dróst saman um 3,1% á þriðja ársfjórðungi og nam 2,3 milljón bílum. Salan í heimalandinu Bandaríkjunum hefur verið ágæt og jókst um 4,9% á fyrstu 9 mánuðunum. Er það helst góð sala á jepplingum og pallbílum sem heldur uppi sölunni. Sala GM í Evrópu var 1,1% meiri en í fyrra á þriðja ársfjórðungi en er 6,3% undir sölunni í fyrra á fyrstu 9 mánuðum ársins. GM er því að tapa markaðshlutdeild í álfunni þar sem vöxturinn í bílasölu þar hefur verið með ágætum í ár. Salan í Kína er 1,6% yfir sölunni í fyrra, en þó féll hún um 4,2% á þriðja ársfjórðungi. Mesta hrun í sölu hefur verið í S-Ameríku og þar hafa selst 30,8% færri bílar á árinu en í fyrra. Sala GM, Toyota og Volkswagen er einkar jöfn, eins og í fyrra, eða í kringum 10 milljón bílar á hvert fyrirtæki og spennandi verður að sjá hvaða fyrirtæki endar sem það söluhæsta í árslok. Vandamál Volkswagen vegna dísilvélasvindlsins gæti haft þau áhrif að fyrirtækið endar sem það þriðja söluhæsta, en sala Volkswagen hefur ekki enn minnkað svo neinu nemur, en næstu mánuðir gætu þó orðið VW erfiðir.
Mest lesið Bað soninn um að halda sig í herberginu meðan árásin átti sér stað Innlent Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Fundu tvö dæmi um Kjartann en samt virðist enginn hafa borið nafnið Innlent „Þá er þetta komið út fyrir öll velsæmismörk“ Innlent Sorg í Mosfellsbæ eftir skemmdarverk á liðsrútunni Innlent Reyndist vera eftirlýstur Innlent „Faðir minn stakk rýtingi í bakið á mér“ Innlent Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Erlent Borgin, utanríkismálin og kjaradeila kennara Innlent Stór skjálfti í Bárðarbungu Innlent