Lífið

Sá fyrsti í One Direction til að verða pabbi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Louis Tomlinson.
Louis Tomlinson. vísir/getty
Louis Tomlinson í hljómsveitinni One Direction er að verða pabbi, fyrstur hljómsveitarmeðlima. Á Louis von á barninu með góðvinkonu sinni Briönu Jungwirth sem er stílisti í Los Angeles.

Louis hætti með kærustu sinni til fjögurra ára í mars síðastliðnum og í maí sást hann úti að skemmta sér með Briönu.

Tímaritið People hefur eftir heimildarmanni sínum að Louis sé hamingjusamur og spenntur yfir því að verða pabbi. Óléttan hafi vissulega komið honum á óvart en hann og Briana séu góðir vinir og að þetta hafi bara styrkt vinskap þeirra.

One Direction er ein vinsælasta hljómsveit í heimi. Þeir komust í fjórða sæti á lista Forbes yfir launahæstu stjörnur í heimi á dögunum með 130 milljónir dala í tekjur á seinustu tólf mánuðum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.