Þeir Pálmi Ragnar Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson hafa dvalið vestan við hafið síðastliðið eitt og hálft ár, þar sem þeir hafa haft í nógu að snúast, og Ásgeir duglegur við að hoppa milli heimsálfa.
Líkt og alþjóð veit hefur StopWaitGo getið sér gott orð fyrir framleiðslu slagara og haft býsna næmt auga fyrir hæfileikaríkum söngvurum. Sem dæmi má nefna Glowie, eða Söru Pétursdóttur sem hefur átt eitt vinsælasta lag sumarsins hér á landi, No more, og hefur þegar náð athygli bandarískra plötuframleiðenda. Hún hyggst fara utan með haustinu þar sem hún kemur til með að funda með stórlöxum. Þá flutti María Ólafsdóttir lag runnið undan rifjum þremenninganna í Eurovision líkt og frægt er orðið, og hafa auk þess tvö ný lög komið frá henni í samvinnu við hópinn.
Því til viðbótar er Friðrik Dór í StopWaitGo-fjölskyldunni, sem keppti jú til úrslita í undankeppni Eurovision á móti Maríu, en lagið Haltu í höndina á mér tröllreið íslensku útvarpi svo ekki sé dýpra í árina tekið, í byrjun árs. Þá má ekki gleyma Öldu Dís, sigurvegara Ísland Got Talent, sem í vikunni sendi frá sér nýtt lag, beint frá Los Angeles, Rauða nótt.
Óhætt er því að segja að félagarnir hafi puttana á púlsinum og ansi naskir á rísandi stjörnur.
„Við vorum til dæmis búnir að vinna lengi með Maríu áður en hún tók þátt í keppninni. Það er gríðarlega gaman að fylgjast með hverju fram vindur, og gaman að sjá hvað gerist í framhaldinu hjá hverjum og einum,“ bendir Ásgeir á, en þeir hyggja sannarlega á frekari landvinninga erlendis þegar tilskilin leyfi detta í hús. „Það er aldrei dauð stund,“ segir hann en StopWaitGo-fjölskyldan mun koma saman um helgina í Hljómskálagarðinum í tilefni Menningarnætur, og útilokar Ásgeir ekki að úr verði eitt allsherjaratriði með öllum hópnum.