„Finnst geðveikt gaman að ég sé með bumbu og ég er bara svo ánægð að vera heilbrigð“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. nóvember 2015 10:45
Stuttmyndin Fellum Grímuna verður sýnd í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld. Í myndinni stíga þjóðþekktir einstaklingar fram og lýsa baráttu sinni við meðal annars kvíða, meðvirkni og fullkomnunaráráttu. Kvikmyndin er framleidd af fyrirtækinu Ekta Ísland sem er í eigu þeirra Jóhönnu Jakobsdóttur og Sigurbjargar Bergsdóttur.Sjá einnig: Auðunn Blöndal fellir grímuna: Ímyndaði sér að vinir sínir baktöluðu sig Meðal þeirra sem koma fram í myndinni er skemmtikrafturinn Anna Svava Knútsdóttir sem lýsir baráttu sinni við nagandi kvíða og slæma líkamsmynd. Í broti úr myndinni, sem sjá má hér að ofan, segir Anna að kvíðinn komi fram í hvert einasta skipti sem Anna stígur á stokk. Alla jafna kemur Anna fram um helgar og segir hún að kvíðinn byrji á fimmtudegi þegar undirbúningurinn hefst. „Svo kemur föstudagurinn og ég vakna bara: „Ohh, þetta verður ömurlegt. Ég er ekki búin að undirbúa neitt. Ég er svo ömurleg. Af hverju er fólk að borga mér fyrir að koma? Þetta eru mistök og fer í gegnum í huganum hvern ég get hringt í til að leysa mig af eða hvort ég geti verið veik,“ segir Anna. Fær niðurgang af stressiKvíðinn ágerist einungis eftir því sem nær dregur. „Svo klukkan fimm er ég komin á gólfið, eldhúsgólfið, með kvíðahnút í maganum,“ útskýrir Anna. „Þetta er líkamlegt, ég get ekki andað og svo stuttu seinna fer ég á klósettið og fæ niðurgang,“ bætir hún við. Í kjölfarið byrja sjálfsásakanirnar: „Svo reyni ég að taka mig saman og hugsa: „Hvað er að þér? Þú gerðir þetta síðustu helgi, þetta skiptir engu máli. Það verða allir fullir þarna. Þú ert ekki aðalatriðið, það er enginn að horfa á þig. Það man enginn eftir þér. Hvað er að þér, djöfulsins aumingi ertu að vera svona ömurlegt og þá verður kvíðinn ennþá meiri,“ segir Anna. Þegar á hólminn er komið segist hún vera of stressuð til að geta yrt á neinn. „Svo fer ég upp á svið og um leið og einhver fer að hlæja verður allt gott og mig langar aldrei að fara. Svo þegar ég er búin langar mig ógeðslega mikið í partý og finnst lífið ógeðslega skemmtilegt. Og svo byrjar þetta aftur næstu vikuna.“Finnst ógeðslega flott að vera með mjaðmir og bumbuÍ myndinni ræðir Anna einnig hina slæmu líkamsmynd sem þjakaði hana á yngri árum. Þannig hafi hún alltaf gengið í svörtum fötum og víðum peysum tl að fela vöxt sinn. Þá vildi hún ekki að fólk kæmi við sig og þótt erfitt þegar fólk faðmaði hana. „Versta stund lífs míns, ég fæ ennþá hroll bara, það var góður dagur þegar ég komst inn í leiklistarskólann. Ég ætlaði að segja kærastanum mínum að ég komst inn og þá komu leiklistarnemar, eldri en ég hlaupandi á móti mér, og voru að kyssa mig og knúsa mig. Ég fór heim og hugsaði: „Ég ætla aldrei í þennan ógeðslega skóla,“ segir Anna Svava. Þeir dagar séu nú að baki. „Nú er ég bara ógeðslega fúl yfir því að hafa eytt svona mörgum árum í að þola ekki líkamann á mér því ég er með flottasta líkama í heimi. Núna klæði ég mig bara í svona lituð föt og mér finnst ógeðslega flott að ég sé með mjaðmir. Mér finnst geðveikt gaman að ég sé með bumbu og ég er bara svo ánægð að vera heilbrigð.“Fjölmargir halda uppi falskri ímyndFellum Grímuna er forvarnarverkefni sem miðar að því að varpa ljósi á þá staðreynd að öll erum við skemmtilega mannleg og enginn er fullkominn. Hins vegar reynir fólk oft að halda uppi falskri ímynd en allt slíkt getur orðið áberandi í litlu þjóðfélagi eins og við búum í á Íslandi. Myndin verður sýnd í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld og nánari upplýsingar um Fellum grímuna má nálgast á Ektaisland.is
Mest lesið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir Sjá meira