Lífið

Illa farnir - Dagur 3: Rómantískt stefnumót í Tyrklandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þeir náðu vel saman.
Þeir náðu vel saman. vísir
Þriðji þátturinn af sjálfstæðu framhaldi af Illa förnum er kominn á Vísi. Í fyrri seríunni ferðuðust þeir Davíð og Binni um Ísland í 16 þátta seríu sem sýnd var við góðan orðstír seinasta vetur hér á Vísi.

Nú eru strákarnir komnir út fyrir landssteinanna og mættir til Tyrklands til að þefa uppi ný ævintýri og fjör.

Um er að ræða einskonar vídeóblogg þar sem þeir félagarnir tóku upp hvern dag fyrir sig.

Í þessum þætti byrjuðu strákarnir á því að fara á Jet-ski og skemmtu sér greinilega konunglega. Því næst var farið í vatnsrennibrautagarðinn á hótelinu og síðan fóru þeir Davíð og Binni saman á rómantískt stefnumót. Þeir enduðu síðan kvöldið á því að fara í keilu.

Fullt af skemmtilegu efni í nýjasta þættinum af Illa förnum, þáttur sem kemur þér í gegnum mánudaginn.

Samtals verða þetta 5 þættir frá Tyrklands för strákanna, þættirnir koma inn á mánudögum næstu vikurnar hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.