Karólína og Laufey úr leik

Seltirningar tóku forystuna í einvíginu við Stjörnuna um Íslandsmeistaratitilinn með sigri í fyrsta leik liðanna á þriðjudaginn. Gróttukonur urðu þó fyrir áfalli snemma leiks þegar Karólína Bæhrenz Lárudóttir haltraði af velli og kom ekkert meira við sögu eftir það.
Í ljós kom að hornamaðurinn öflugi er tognuð aftan í læri og bættist þar með á meiðslalista Gróttu þar sem fyrir voru þær Anett Köbli og Laufey Ásta Guðmundsdóttir.
Anett hefur ekkert spilað síðan í öðrum leiknum í undanúrslitaeinvíginu við ÍBV en Laufey lék fjórða og fimmta leikinn gegn Eyjakonum og skoraði í þeim samtals 16 mörk.
Hún spilaði hins vegar ekkert í seinni hálfleik á þriðjudaginn og útséð er með frekari þátttöku hennar og Karólínu í úrslitaeinvíginu.
„Það eru engar líkur á að þær spili meira í vetur. Núll prósent,“ sagði Kári Garðarsson, þjálfari Gróttu, í samtali við Vísi í gær.
„Karólína er tognuð aftan í læri. Þetta gæti verið verra en þetta er tognun í vægara lagi. En hún fer ekkert af stað fyrr en eftir 10-14 daga í fyrsta lagi og ef þú ferð of snemma af stað geturðu tognað eða rifið meira ,“ sagði Kári ennfremur en úrslitaeinvígigð klárast í síðasta lagi föstudaginn 15. maí.
Laufey glímur við kálfameiðsli en hún píndi sig í gegnum síðustu tvo leikina við ÍBV og fyrri hálfleikinn á þriðjudaginn.
„Laufey er mjög illa farin og í raun verr en Karólína. Henni líður allavega verr í dag (í gær). Laufey er tognuð aftan í kálfa og hefur verið að glíma það í fimm vikur.
„Hún hefur spilað síðustu tvo og hálfan leik á hörkunni en framlengdi oddaleikurinn við ÍBV tók sinn toll. Svo voru aðeins þrír dagar á milli hans og fyrsta leiks gegn Stjörnunni. Maður vissi að þetta héngi á bláfræði.“
Góðu fréttirnir eru þó þær að Anett gæti möguleika leikið með Gróttu í komandi leikjum og þá fékk Eva Margrét Kristinsdóttir ekki leikbann fyrir rauða spjaldið sem hún fékk í fyrsta leiknum gegn Stjörnunni.
„Ég er bjartsýnni með hana en hinar tvær. Hún fór í ákveðna meðferð í byrjun vikunnar og það eru einhverjar líkur á hún geti hjálpað okkur,“ sagði Kári en hin 37 ára gamla Anett hefur glímt við hnémeiðsli í allan vetur.
„Það er jákvætt að Eva Margrét fór ekki í bann. Það hefði verið eitthvað. En það þýðir ekki að gráta. Þetta er eins og þetta er,“ sagði Kári Garðarsson að lokum.
Annar leikur Gróttu og Stjörnunnar er í Mýrinni í Garðabæ og hefst klukkan 19:30 í kvöld. Hægt verður að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.
Tengdar fréttir

Kristín Guðmunds: Fólk er farið að sjá veikleika Gróttu
Úrslitaeinvígi Gróttu og Stjörnunnar í Olís-deild kvenna í handbolta hefst í kvöld þegar liðin leiða saman hesta sína í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi.

ÍBV svaraði fyrir skellinn á Nesinu
ÍBV jafnaði metin í undanúrslitarimmunni við Gróttu með eins marks sigri, 30-29, í Íþróttahöllinni í Vestmannaeyjum í dag.

Helena Rut með 6,1 mark að meðaltali í leik í úrslitakeppninni
Grótta og Stjarnan mætast í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta-Stjarnan 24-21 | Grótta tók frumkvæðið
Grótta komst í 1-0 gegn Fram í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn með þriggja marka sigri, 24-21, á Stjörnunni í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - ÍBV 24-22 | Bjargvætturinn Laufey
Grótta mætir Stjörnunni í úrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta en Seltirningar tryggðu sér sæti í úrslitunum með tveggja marka sigri á ÍBV í framlengdum oddaleik. Lokatölur 24-22.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - ÍBV 27-16 | Öruggur sigur deildarmeistaranna
Grótta rúllaði yfir ÍBV í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar kvenna í handbolta. Lokatölur 27-16, Seltirningum í vil.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Grótta 21-34 | Grótta tryggði sér oddaleik með látum
Grótta vann þrettán marka sigur í Vestmananeyjum og mætir ÍBV í oddaleik á heimavelli.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Grótta - ÍBV 22-25 | Eyjastúlkur 2-1 yfir og með einvígið í sínum höndum
ÍBV er yfir í einvíginu 2-1.